Markpóstur
Hvað er markpóstur?
Markpóstur er persónulegt bréf stílað á nafn og er ein leiðunum í beinni markaðssókn. Það sem einkennir beina markaðssókn er að athygli er beint að einum viðtakanda í einu. Markmiðið er að fá viðkomandi til að bregðast við á einhvern hátt:
- hringja
- senda tölvupóst
- skrá sig á vefsíðu
- biðja um frekari upplýsingar
- óska einhvers
- kaupa eða kaupa aftur
Með Markpósti getur þú stýrt söluálagi og höfðað til ólíkra markhópa á mismunandi tímum.
Hlúðu að viðskipavinum þínum
Viðskiptavinir eru misjafnlega verðmætir og stendur oft þriðjungur viðskiptavinanna undir tveimur þriðju veltunnar. Mikilvægt er að þú gerir þér grein fyrir því hverjir verðmætustu viðskiptavinirnir eru og nálgist þá samkvæmt því.
Dýrt er að missa góða viðskipvini
Það er ávallt slæmt að missa góða og trygga viðskiptavini, þá glatast ekki aðeins næstu viðskipti þeirra heldur jafnvel viðskipti þeirra framvegis.
Með markpósti gefst þér færi á að vera í stöugum samskiptum við viðskiptavinina og veita þeim þannig góða þjónustu og efla tryggð þeirra.
Tryggir viðskiptavinir kaupa gjarnan meira en hinir
Oft er því haldið fram að það kosti fimm til tíu sinnum meira að ná í nýjan viðskiptavin en að halda í þann sem fyrir er. Þetta eru vitaskuld ekki rök gegn því að þú leitir nýrra viðskiptavina en vert er að hafa í huga að núverandi viðskiptavinir eru oftar tilbúnir til að eiga frekari viðskipti við fyrirtækið.
Hjá Markhópum getur þú keypt upplýsingar um póstföng heimila og fyrirtækja.